Prófíll

  • Nafn: Tinna Stefánsdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Sjúkraþjálfaro
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð
  • Um mig: ósköp venjuleg 25 ára stelpa...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Könnun

Hver ert þú ?

Klukkan

Atburðarteljari

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Fréttir og nenni þessu ekki lengur...

19. ágúst 2007 klukkan 15:52
Ég hef ákveðið að nenna þessu ekki lengur, sé til seinna hvort einhver bloggandi komi yfir mig og byrja þá aftur...
en það helsta í fréttum er að ég þarf víst að fara að safna hári... ákvað það fyrir mörgum árum síðan að ég ætlaði að vera með sítt hár þegar ég gifti mig Brosandi
Símon fór sem sagt á skeljarnar um daginn og auðvitað sagði ég já um leið. Við höfum sem sagt ákveðið að gifta okkur næsta sumar en þá eru víst liðin 10 ár síðan við byrjuðum saman ótrúlegt en satt Glottandi mér finnst vera svo stutt síðan...

en jæja með þessum fréttum fer ég sem sagt í bloggpásu...

Tinna Stefánsdóttir
2 athugasemdir

svona miklum hita...

28. júní 2007 klukkan 18:41
... hef eg aldrei kynnst !!!
er stodd i grikklandi nuna og tad voru teaplega 50 gradur i gaer - helt ad eg myndi ekki lifa daginn af... sem betur fer var adeins kaldara i dag, bara um 40 gradur. Verd reyndar ad vidurkenna ad fimm gradurnar heima freista min ekkert svakalega...

solskinskvedjur fra Rhodos Svalur
Tinna Stefánsdóttir
4 athugasemdir

sumarið er víst búið...

12. maí 2007 klukkan 11:06
Það stóð nú ekki lengi en maður verður víst að vera ánægður með allt sem maður fær á þessu ÍSlandi sínu. Spáin fyrir daginn í dag er víst snjókoma ! ekki alveg að fíla það.

Svo eru það kosningar í dag... ég er nánast alveg búin að gera upp hug minn, á reyndar eftir að fara á nokkra staði í kosningarkaffi og spyrja nokkurra spurninga en ég held að atkvæði mitt breytist nú ekkert við það.
Ég er í fyrsta sinn að kjósa í heimabyggð á kosningardegi, hef alltaf þurft að kjósa utankjörstaða þannig að þetta verður ábyggilega viss stemming að fara og kjósa... ætli að maður verði ekki að skella sér í fínu fötin áður en maður merkir X við ....

Annars er lítið að frétta, er reyndar að fara suðurum næstu helgi í IKEA ferð með Sísí og svo er farið að styttast í Rhodos ferðina... vá hvað ég hlakka til að komast í sól ! svo er eg að stefna að því að fara til Edinborgar á sports injuries ráðstefnu fjórum dögum eftir að ég kem heim frá Rhodos... bara nóg að gera Hlæjandi

en jæja ætli að það sé ekki best að skella sér í sturtu og gera sig klára fyrir kosningarnar...


Tinna Stefánsdóttir
3 athugasemdir

Það er komið sumar...

29. apríl 2007 klukkan 20:15
... sem er algjör snilld Svalur um 20°C hiti á Akureyri um helgina, þannig að kvartbuxurnar og stuttu pilsin hafa notið sín og VÁ hvað ég er fegin að vera ekki í prófum eða gera lokaritgerð eins og á sama tíma í fyrra Brosandi algjör snilld að geta notið veðursins áhyggjulaus...


blogga aftur þegar sumarið er búið.... sem sagt í næstu viku ef ég þekki veðurfarið á þessu landi rétt Glottandi
Tinna Stefánsdóttir
1 athugasemd

Ferðasagan...

10. apríl 2007 klukkan 16:48
jæja þá er maður kominn aftur á klakann eftir frábæra ferð. Ég ætla að stikla á stóru um ferðina og nefni því aðeins hápunktana Brosandi.

Ferðin byrjaði á einum hápunkti þegar við löbbuðum inn á "hotelið" í London þar sem við áttum að gista eina nótt áður en ferðinni var heitið til Ítalíu... þetta var það ógeðslegasta hótel sem ég hef á ævinni séð og við náttúrulega sprungum gjörsamlega úr hlátri þegar við komum þarna inn því annað var ekki hægt. Það var allt svo þröngt og skítugt að það hálfa væri nóg. Herbergið sem ég Símon og Sísí deildum var ágætis einsmanns herbergi en ekki ætlað fyrir 3, þegar maður opnaði dyrnar þá gat maður bara gert það til hálfs þar sem hurðinn rakst í eitt rúmið Hlæjandi, bak við það rúm var fatskápurinn en það var náttúrulega ekki hægt að opna hann þar sem rúmið var fyrir. Svo var búið að troða þarna inn tveimur öðrum rúmum sem ég skil ekki hvernig komust þarna inn. Gólfplássið var sem sagt ekkert og því ekki pláss fyrir ferðatöskurnar Glottandi. Herergið átti að vera með baðherbergi... en við urðum nú ekki vör við það, hins vegar var skápur frammi á gangi þar sem klosett var staðsett Brosandi. Mömmu og pabba herbergi var nú aðeins betra og fengu þau þann lúxus að vera með klósett OG sturtu Glottandi. Við eyddum sem betur fer mjög takmörkuðum tíma á þessum herbergjum þar sem margt annað var meira spennandi í London en að hanga inni á hótelherbergi.

Daginn eftir var svo förinni heitið til Róm og var nú vægast sagt kominn spenningur í mann þar sem mér tókst að týna staðfestingunni á hótelinu okkar þar og þau vildu nú ekkert kannast við okkur þegar við hringdum til að tjékka hvrt við ættum ekki alveg örugglega pöntuð herbergi Skömmustulegur. En viti menn við vorum náttúrulega aðeins búin að skipta um nöfn en herbergin voru okkar þegar við mættum þarna rétt um miðnætti... sem betur fer. Við fengum svo að vita að hótelið var í eigu vatikansins, það útskýrir líklega af hverju það voru 2 kapellur á hótelinu. Herbergin þar voru nokkrum klössum hærri en í London þannig að við fengum öll einkabaðherbergi Koss.
Allt það helsta sem hægt var a skoða var skoðað, Colosseum, Vaíkanið, St. Péturs kirkja, allar rústir og gamlar byggingar sem til eru í róm held ég hreinlega, enda voru það ófá skrefin sem við tókum þarna, alla vegana 10 km á dag.

svo var komið að verslunarferðinni miklu. Ákváðum sem sagt að fara í eitthvað moll fyrir utan Róm til að komast í H&M og átti su ferð að taka svona klukkutíma hvora leið... en við vorum 12 tíma fram og til baka en eyddum bara 3 tímum í sjálfu mollinu Hlæjandi... ég segi ekki meir...

Svo tókst mér að láta ræna mig... hélt alltaf að það kæmi ekki fyrir mig þar sem ég er frekar paranoid - en shit happens. Ég var eryndar svo heppin og þjófurinn óheppinn að eg var ekki með neina peninga i veskinu, bara öll kortin mín og jú miða í gegnum göngin. Þannig að ef hann ákveður að skella sér til Íslands þá fær hann alla vegana fritt í gegnum göngin Hlæjandi. Þannig að það sem eftir lifði ferðarinnar þá lifði eg bara á símoni... ekki slæmt það Hlæjandi ég ætla að taka það fram að ég var rænd á öðrum degi okkar í Róm þannig að aumingja Símon Saklaus.

Sumir í ferðinni... nefnum engin nöfn eignuðust nokkra gervikærasta, þar sem hennar kærasti var ekki með og hormónarnir eitthvað að hrella hana Hlæjandi... verst að kærastarnir vissu ekki að þeir væru það Glottandi.

Drykkur ferðarinnar var án efa Irish caffe blandað af barþjóninum okkar honum Óla Hlæjandi.

Hápunktur ferðarinnar var ferðin í Sistínsku kapelluna - þangað þurfa allir að koma einhvern tíman !!

Jæja læt þetta nægja í bili... kom heim þreytt í gær frá London eftir gistingu á prýðilegu flugvallarhóteli og vildi í fyrsta skipti í langan tíma óska þess að ég byggi í Reykjavík Öskrandi ekki að nenna að keyra norður...
Tinna Stefánsdóttir
7 athugasemdir

Stungin af...

30. mars 2007 klukkan 16:57
... jæja þá er maður að leggja af stað í reisuna miklu ;) allir að krossa fingur að allar bókanir séu réttar... sérstaklega þar sem mér tókst að eyða út staðfestingunni á hótelinu í Róm og því ekki með neitt í höndunum um bókunina - en er búin að borga 230.000 kall Skömmustulegur... annars tjöldum við bara á Péturstorginu... er það ekki ? Svalur


Tinna Stefánsdóttir
5 athugasemdir

nýr kaggi...

20. mars 2007 klukkan 19:29
... já þa er bara allt að gerast, við skötuhjúin keyptum okkur nýjan bíl núna um helgina Hlæjandi ég er ekkert smá ánægð með hann, get reyndar ekki sagt ykkur mikið um hann þar sem ég veit ekkert um bíla.. hann er blár toyota avensis og er rúmlega tveggja ára, það er svona beisiklí það sem ég veit um hann... og já hann er geðveikt flottur Hlæjandi þannig að nú get ég verið mega gella á rúntinum á AkureyriSvalur.

Set inn mynd við tækifæri...
Tinna Stefánsdóttir
7 athugasemdir

afmæli, afmæli

15. mars 2007 klukkan 15:15
 Já það er ekki hægt að segja annað en að þetta sé afmælismánuðurinn mikli í minni fjölskyldu. Gamli á afmæli í dag og er hvorki meira né minna en 49 ára... styttist óðfluga í hálfraraldrar afmæli hjá kallinum. Tengdapabbi átti svo afmæli í gær og amma um helgina og náttúrulega bestasti besti frændi hann Andri á mánudaginn og auðvitað systir hans hún Lína líka. Þannig að það er alveg helling um afmæli þessa dagana og því helling af afmælisgjöfum til að hafa áhyggjur af, sérstaklega þar sem maður er aldrei búin að vinna fyrr en sex og kemst því ekki í búðir... mér tókst hins vegar í dag að senda bæði sísí og símon að kaupa afmælisgjöf handa pabba þannig að alveg óvart þá keyptum við tvennt af þessari blessuðu gjöf Hissa góður Tinna...

en jæja verð að fara að vinna, læt eina mynd fylgja af afmælisbarninu

Tinna Stefánsdóttir
3 athugasemdir

Mont...

08. mars 2007 klukkan 20:28
ég verð bara að monta mig pínu Hlæjandi þann fyrsta janúar síðastliðin ákvað ég að nú þyrfti ég virkilega að taka á mínum málum... ég er alltaf svaka dugleg að taka mig á og missa 2-4 kg en svo fer ég alltaf í sama farið. En núna er það ekki svo held ég, ég er alla vegana búin að missa sjö kíló og síðastliðnar 3 vikur hef ég misst 3% í fituprósentu Brosandi og ég er bara drullu stolt af mér...

alltaf gaman að vera ánægður með sjálfan sig - er það ekki Glottandi?
Tinna Stefánsdóttir
4 athugasemdir

það var lítil dama...

25. febrúar 2007 klukkan 13:23
sem kom í heiminn í nótt - innilega til hamingju Þórunn og Kristinn með litlu snúlluna Hlæjandi ég get ímyndað mér að það klingi aðeins í manni þegar maður fær að kíkja á litlu fjölskylduna.

Þetta var samt pínu fyndið þar sem við vinkonurnar vorum búnar að ákveða að vera með stelpukvöld í gær, Dúnna sendi Þórunni sms hvort að hún vildi ekki kíkja á okkur þó að hún kæmi ekkert með í bæinn þar sem hún var nú sett á morgunn. En Þórunn var þá akkúrat búin að missa vatnið og á leið upp á spítala Hlæjandi það var því ekkert lítið skálað fyrir henni í nótt ;).

Vá hvað ég dýrka það að fara í ræktina um helgar, ég fer alltaf fyrir hádegi báða dagana og fyrir vikið er maður alltaf súperhress um helgar, ekkert betra en það að koma superhress heim í hádeginu í staðinn fyrir að sofa fram að hádegi eins og eg var vön Skömmustulegur. Á sunnudagsmorgnum fer ég alltaf i fit-pilates sem eru æfingar á boltum og dýnu, í fyrsta tímanum var ég vægast sagt eins og baviani datt milljón sinnum af boltanum og svaka stuð en núna er ég bara að verða nokkuð góð þó svo að ég segi sjálf frá Hlæjandi maður verður bara komin með six-pack áður en maður veit af Glottandi þetta eru sem sagt snilldartímar og ég mæli með þeim fyrir alla þar sem þetta þjálfar svo vel djúpvöðvakerfi baks og kviðs sem er svoooo mikilvægt fyrir okkur til að minnka líkur á mjóbakseinkennum !! vonandi að ég sjái bara sem flesta næsta sunnudag Glottandi

en jæja ætla að skella mér í ljós með Huldu Rún

Tinna Stefánsdóttir
4 athugasemdir